Sigurjón Friðbjörn Björnsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs FH í Grill66-deildinni. Hann tekur við liðinu af Árna Stefáni Guðjónssyni, sem lét af störfum eftir að hafa fengið sæti í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Sigurjón var aðstoðarþjálfari Árna Stefáns hjá FH á síðustu leiktíð og segir verkefnið spennandi. „Þetta leggst bara mjög vel í mig. Þetta er spennandi verkefni og búið að byggja góðan grunn til þess að taka næsta skref frá mínum forvera. Fyrstu vikurnar hafa bara verið góðar og ég hlakka bara til að fara af stað aftur eftir frí,“ segir Sigurjón í samtali við Handkastið. Hann segir að það hafi ekki verið löng umhugsun þegar möguleikinn á því að taka við liðinu kom upp. „Um leið og það lá fyrir að Árni Stefán þyrfti mögulega að stíga frá þessu og þetta var borið undir mig var þetta klárt. Við erum í miðri vegferð með þetta verkefni og það var aldrei spurning í mínum huga að halda því verkefni áfram.“ FH hafnaði í fjórða sæti Grill66-deildarinnar á síðustu leiktíð með 20 stig, jafn mörg og Víkingur sem endaði í þriðja sæti. FH féll síðan úr leik í undanúrslitum umspilsins um laust sæti í Olís-deildinni eftir 2-0 tap gegn Stjörnunni. Eftir fjölgun liða í Olís-deildinni á komandi tímabili hefði FH þó aðeins þurft að enda fyrir ofan Víking til þess að tryggja sér sæti í efstu deild. Sigurjón segir þó að áherslan verði ekki á að umbylta því sem gert var á síðustu leiktíð heldur byggja ofan á góðan grunn. „Auðvitað eru alltaf einhverjar áherslubreytingar þegar nýir menn stíga í brúnna en við stefnum að því að byggja ofan á það sem var gert á síðustu leiktíð.“ Hann er ánægður með stöðuna á leikmannahópnum og telur FH búa yfir góðri blöndu af ungum og efnilegum leikmönnum og reynslumeiri leikmönnum. „Staðan á hópnum er bara góð. Við erum með ungan og efnilegan hóp sem er tilbúinn að taka næsta skref í bland við eldri leikmenn.“ FH hefur þegar fengið Sylviu Björt Blöndal til liðs við sig fyrir komandi tímabil. „Ef rétti leikmaðurinn býðst munum við að sjálfsögðu skoða það en ég hef fulla trú á þeim hóp sem við höfum til umráða og að hann geti tekið næsta skref saman. Við erum nú þegar búin að fá Sylviu til liðs við okkur ásamt því að við endurheimtum Fanney Þóru úr fæðingarorlofi og Ísabellu úr erfiðum meiðslum.“ FH þarf þó að bæta ákveðna þætti frá síðasta tímabili að mati Sigurjóns. Þar ber hæst að auka stöðugleika í frammistöðum liðsins. „Við þurfum að auka stöðugleika í frammistöðum frá því í fyrra. Við áttum marga góða leiki en duttum á frekar lágt plan þess á milli og það eru nokkrar frammistöður sem svíða svolítið á síðasta tímabili.“ Sóknarleikurinn verður einnig í brennidepli hjá FH fyrir komandi tímabil. „Að auki munum við leggja áherslu á sóknarleikinn og seinni bylgjuna sóknarlega, sem hefði getað verið fjölbreyttari og agaðri á síðasta tímabili.“ Markmið FH er skýrt fyrir komandi tímabil. Liðið ætlar sér að blanda sér í baráttuna um sæti í Olís-deildinni. „Við ætlum okkur að blanda okkur í baráttuna um að komast upp í efstu deild. Ég tel það vera rökrétt skref fyrir þennan hóp.“ Til þess að það takist telur Sigurjón fyrst og fremst þurfa stöðugleika. ,,Ef klúbburinn heldur þessum kjarna sem fyrir er tel ég þakið til framfara vera nokkuð hátt.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.