Tvíhöfði Vals og Hauka í Meistarakeppni HSÍ
Sævar Jónasson

Meistarakeppni HSÍ fer fram föstudaginn 28. ágúst næstkomandi í N1-höllinni að Hlíðarenda þar sem Valur og Haukar mætast í svokölluðum tvíhöfða.

Kvennaliðin ríða á vaðið klukkan 18:00 en síðan mætast karlaliðin klukkan 20:15. Leikirnir marka því formlega upphaf nýs handboltatímabils hér á landi.

Valur er ríkjandi Íslandsmeistari í bæði karla- og kvennaflokki. Kvennalið félagsins er einnig ríkjandi bikarmeistari eftir sigur á Haukum í bikarúrslitum síðasta tímabils.

Haukar eru hins vegar ríkjandi bikarmeistarar í karlaflokki eftir sigur á ÍR í úrslitaleiknum á síðasta tímabili.

Stjarnan vann Meistarakeppni HSÍ í karlaflokki í fyrra eftir sigur á Fram, en Valur hafði betur gegn Haukum í kvennaflokki.

Meistarakeppni HSÍ hefur því að geyma áhugaverð uppgjöra á milli tveggja stórliða íslensks handbolta. Það er ekki algengt að báðir leikirnir séu spilaðir sama dag og á sama stað og því ljóst að HSÍ hyggst gera meira úr leikjunum en oft áður.

Handboltaáhugafólk ætti því að taka kvöldið frá, 28.ágúst.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top