Nýliðar Víkings í Olís-deild kvenna hafa samkvæmt heimildum Handkastins samið við Svartfellinginn, Anitu Muratovic um að leika með liðinu á komandi tímabili. Anita verður þar með annar leikmaðurinn sem gengur í raðir Víkings í sumar. Guðrún Maryam Rayadh gekk fyrr í sumar til liðs við Víking en hún lék með Fjölni í Grill66-deildinni á síðustu leiktíð. Anita, sem er fædd árið 2000 og varð 26 ára í febrúar, lék með VíF í Færeyjum í þrjú tímabil, frá 2022 til 2025. Þar skoraði hún að jafnaði á bilinu tvö til þrjú mörk í leik á sínum árum með liðinu. Á síðustu leiktíð lék hún í heimalandi sínu. Hún kemur nú til Íslands þar sem hún mun taka þátt í baráttu Víkings í Olís-deildinni eftir að liðið tryggði sér sæti í efstu deild eftir að fjölgað var um tvö lið í Olís-deildinni en á komandi tímabili leika tíu lið í Olís-deildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.