Reynsluboltar Þórs samningslausir
Egill Bjarni Friðjónsson

Reynsluboltarnir Oddur Gretarsson og Þórður Tandri Ágústsson eru báðir samningslausir eftir síðasta tímabil með Þór í Olís-deild karla.

Báðir leikmenn hafa verið mikilvægir hlekkir í liði Þórs á undanförnum árum og búa yfir mikilli reynslu. Oddur hefur leikið með Þór síðustu tvö tímabil eftir áralanga dvöl erlendis í atvinnumennsku. Þórður Tandri sneri einnig heim til Þórs á sama tíma eftir veru sína í Garðabænum hjá Stjörnunni.

Báðir eru þeir uppaldnir hjá Þór og voru lykilmenn hjá liðinu á síðustu leiktíð er liðið var nýliði í Olís-deildinni og voru hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni.

Samkvæmt vef HSÍ eru þeir báðir nú samningslausir og því ljóst að framtíð þeirra hjá Þór er óviss þó svo að gera megi ráð fyrir því að þeir leiki áfram með Þór á næstu leiktíð, Handkastið hefur í það minnsta ekki heyrt neitt annað.

Það verður þó að teljast ansi athyglisvert að eins reynslu miklir leikmenn séu samningslausir svona stuttu í að Íslandsmótið hefjist.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top