Jan framlengir við Víði
Víðir

Markvörðurinn, Jan Krzysztof Widera hefur skrifað undir nýjan samning við Víði í Garði og leikur með liðinu í Grill66-deildinni á komandi tímabili. Þetta tilkynnti félagið á dögunum.

Jan lék alla 14 leiki Víðis í 2.deildinni á síðustu leiktíð þar sem liðið endaði í 2.sæti og vann sér sæti í Grill66-deildinni.

,,Þetta er stór og mikilvægur biti fyrir liðið á komandi tímabili, þar sem félagið mætir galvaskt til leiks eftir að hafa unnið sér sæti ofar í deildar kerfinu. Jan hefur fyrir löngu sannað sig í "bláu" treyjunni. Hann hefur leikið 30 leiki fyrir Víði og skorað 10 mörk – sem er einstaklega glæsileg tölfræði fyrir markvörð og segir sitt um hversu virkur hann er í leiknum, ekki bara á milli stanganna heldur einnig fram á við þegar tækifærin gefast. Sterkur markvörður er hryggjarstykkið í hverju liði og það er ómetanlegt fyrir Víði að halda í jafn öflugan mann í markinu fyrir átökin í vetur," segir meðal annars í tilkynningunni frá Víði.

„Ég er ánægður með að hafa skrifað undir samning til eins árs í viðbót. Það gefur mér tækifæri til að sýna hvað í mér býr í sterkari deild og reyna mig gegn liðum sem spila á hærra getustigi en ég hef átt að venjast." segir Jan.

Fyrsti leikur Víðis í Grill66-deildinni verður gegn gríðarlega sterku liði Gróttu, föstudaginn 4.september en það verður gríðarlega spennandi að fylgjast með liði Víðis í Grill66-deildinni á komandi tímabili.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top