Ólafur Malmquist verður áfram í Grafarvoginum
Fjölnir

Ólafur Malmquist, eða Óli Mall eins og hann er oftast kallaður hefur skrifað undir samning við Fjölni og leikur því áfram með liðinu í Grill66-deildinni á næstu leiktíð.

Þetta tilkynnti félagið í tilkynningu á heimasíðu sinni.

,,Óli hefur verið einn af lykilmönnum liðsins undanfarin ár. Hann er öflugur varnarmaður sem leggur alltaf hart að sér og hefur með reynslu sinni, baráttugleði og dugnaði verið mikilvægur hlekkur í liðinu bæði innan vallar sem utan," segir í tilkynningunni frá Fjölni.

Meistaraflokksráð karla fagnar því að Ólafur verði áfram hluti af liðinu. „Það gleður okkur mikið að Ólafur Malmquist hafi framlengt samning sinn við félagið. Hann hefur verið einn af mikilvægustu leikmönnum liðsins undanfarin ár og við erum sannfærð um að hann eigi eftir að halda áfram að leggja liðinu mikið til á komandi árum.“

„Ég er hæstánægður að halda áfram í Grafarvoginum. Við erum með frábæran hóp af strákum og Gunni kemur inn með mikinn metnað. Ég hef mikla trú á því sem við erum að gera og er mjög spenntur fyrir komandi tímabili," sagði Ólafur.

Fjölnir leikur undir stjórn Gunnars Vals Arasonar sem tók við liðinu á dögunum af Guðmundi Rúnari Guðmundssyni.

Fjölnir

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top