Daninn framlengir í Mosó
Afturelding

Danski leikmaðurinn í Mosfellsbænum, Oscar Lykke hefur framlengt samningi sínum við Aftureldingu. Oscar gerir tveggja ára samning við Aftureldingu en fyrri samningur hans var til 2027.

Oscar kom til Aftureldingar síðasta sumar frá TMS Ringsted sem leikur í efstu deild í Danmörku. Oscar skoraði 94 mörk og gaf 54 stoðsendingar í 23 leikjum fyrir Aftureldingu á síðasta tímabili.

,,Oscar er virkilega vel liðinn innan hópsins og smellpassar inn í samfélagið okkar í Mosfellsbæ. Stjórn handknattleiksdeildarinnar bindur miklar vonir við Oscar og hlakkar til að sjá hann halda áfram að bæta sig í rauðu treyjunni," segir í tilkynningunni frá Aftureldingu.

Hrannar Guðmundsson er nýr þjálfari Aftureldingar en hann tók við liðinu af Stefáni Árnasyni sem stýrði Aftureldingu í 6.sætið á síðustu leiktíð en liðið féll úr leik í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins.

Olís-deild karla hefst í byrjun september en Afturelding mætir nýliðum Víkings í fyrstu umferð mótsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top