Anita Muratovic gerir 2 ára samning við Víking

Handknattleiksdeild Víkings hefur gert tveggja ára samning við Anitu Muratovic.

Anita er fædd árið 2000 og kemur frá Svartfjallalandi. Hún er rétthent og getur bæði spilað sem skytta og sem leikstjórnandi.

Anita er með margra ára reynslu í svartfellsku deildinni. Á síðasta tímabili spilaði hún með ŽRK Tivat í Svartfjallalandi en þar áður spilaði hún í þrjú ár með VÍF Vestmanna í Færeyjum.

"Anita er virkilega öflugur leikmaður og er Handknattleiksdeild Víking virkilega spennt að fá hana í Olís deildar slaginn með okkur" segir í tilkynningu frá Víking í dag.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top