Frá Íslandsmeisturunum í Breiðholtið
Baldur Þorgilsson

Vinstri hornamaðurinn, Daníel Örn Guðmundsson leikur með ÍR í Grill66-deildinni á næstu leiktíð.

Daníel hefur verið lánaður í Breiðholtið frá Íslands- og deildarmeisturum Vals en hann var í litlu hlutverki með Val í fyrra undir stjórn Ágústs Jóhannssonar. Með tilkomu Bessa Teitssonar frá Gróttu er ljóst að spil mínútum Daníels var ekki að fara fjölga í vetur og hefur hann nú ákveðið að leika með ÍR í Grill66-deildinni.

Daníel sem er uppalinn hjá Val er fæddur árið 2004 og var í yngri landsliðum Íslands á sínum tíma. Hann skoraði 28 mörk fyrir Val í fyrra þegar liðið varð bæði Íslands- og deildarmeistari.

ÍR féll úr Olís-deildinni á síðustu leiktíð eftir tveggja ára dvöl í Olís-deildinni. Á dögunum gekk Aron Daði Stefánsson einnig í raðir ÍR á láni frá KA.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top