Leikstjórnandinn, Aníta Björk Valgeirsdóttir leikur ekki með Stjörnunni í Olís-deild kvenna á komandi tímabili. Þetta staðfesti Arnar Daði Arnarsson þjálfari liðsins í samtali við Handkastið. Aníta Björk er á leið til Danmerkur í nám en hún fékk innkomu í skólann á dögunum og þar með var ljóst að hún leikur ekki með Stjörnunni í Olís-deildinni í vetur. Aníta gekk í raðir Stjörnunnar fyrir síðasta tímabil frá FH en hún skoraði 36 mörk fyrir Stjörnuna á síðasta tímabili, þar af 29 af vítalínunni. Aníta er áttundi leikmaðurinn sem yfirgefur Stjörnunnar frá síðustu leiktíð en miklar breytingar verða á liðinu fyrir tímabilið en liðið hélt sæti sínu í deild þeirra bestu eftir sigur á Gróttu í úrslitum umspilsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.