Frasar í handbolta eru til af ástæðu
Eyjólfur Garðarsson

Íslenska U18 ára landslið karla hóf Evrópumótið í Serbíu með sannfærandi 39-25 sigri á Svartfjallalandi í dag. Eftir leik var Andri Sigfússon, einn af þjálfurum liðsins, ánægður með frammistöðuna en benti jafnframt á að liðið ætti enn ýmislegt inni fyrir komandi verkefni.

„Við lékum vel stóran hluta leiksins í dag. Það var ekki fyrr en um miðjan fyrri hálfleik sem við hristum Svartfellinga af okkur og náðum góðu forskoti. Varnarleikurinn og markvarslan hrökk í gang á þeim tíma,“ sagði Andri.

Íslenska liðið breytti stöðunni úr 7-7 í 14-7 um miðjan fyrri hálfleik og lagði þar grunninn að öruggum sigri. Svartfellingar náðu þó að saxa á forskotið í upphafi síðari hálfleiks.

„Í byrjun síðari hálfleik urðum við of værukærir. Svartfellingar nýttu sér það og minnkuðu muninn í fimm mörk. Á þeim tíma ætluðum við okkur of mikið, á of stuttum tíma. Við endurskipulögðum okkur og þá hrukkum við aftur í gang. Við unnum að lokum flottan sigur.“

Þjálfarinn lagði sérstaka áherslu á varnarleikinn og markvörsluna, sem hann telur hafa skipt sköpum í leiknum. „Frasar í handbolta eru til af ástæðu. Vörn og markvarsla er lykill að góðum árangri. Við vorum góðir í þeim þáttum í 40 mínútur í dag.“

Andri var einnig ánægður með að hafa getað dreift álaginu vel á fyrsta leikdegi mótsins.

„Við náðum að fá alla leikmenn að borðinu í leiknum og dreifðum álaginu vel. Það er hörkuleikur framundan á morgun gegn Ungverjum og þá er gott að allar fætur séu ferskar.“

Freyr Aronsson var markahæstur í íslenska liðinu með tíu mörk en Alex Unnar Hallgrímsson skoraði sjö. Næsti leikur Íslands er gegn Ungverjalandi á morgun klukkan 17:30 að íslenskum tíma.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top