Vilmar ráðinn til ÍBV í annað sinn

Vilmar Þór Bjarnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar ÍBV.

Vilmar Þór er öllum hnútum kunnugur hjá ÍBV en hann hefur áður starfað sem framkvæmdarstjóri deildarinnar á árunum 2019-2023.

Vilmar tekur við starfinu af Þorláki Sigurbirni Sigurjónssyni en hann hafði sinnt framkvæmdarstjóra starfinu um nokkurt skeið.

"Á sama tíma og handknattleiksráð vill þakka Þorláki fyrir sín störf sem framkvæmdastjóri þá viljum við bjóða Vilmar hjartanlega velkominn aftur. Handknattleiksráð er gríðarlega ánægt með að Vilmar sé kominn aftur og hlakkar til samstarfsins" segir í tilkynningu frá ÍBV nú í dag.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top