Íslenska U18 ára karla landslið Íslands vann í gær sannfærandi þrettán marka sigur á Ungverjum 41-28 í öðrum leik sínum á Evrópumótinu sem fram fer í Serbíu. Gunnar Róbertsson leikmaður Vals var frábær í leiknum og var markahæstur í liði Íslands með tólf mörk í leiknum. Í seinni hálfleik gerði hann sér lítið fyrir og skoraði tvö mörk á níu sekúndum, eitthvað sem ekki allir ná að afreka á ferlinum. Þórður Már Sigfússon, góðvinur Handkastsins vakti athygli á þessu á X reikningi sínum í gær og hægt er að sjá myndskeið af því hér að neðan er Gunnar skoraði tvö mörk á ekki nema níu sekúndum. Ísland mætir Sviss í lokaleik sínum í riðlakeppninni á morgun klukkan 12:30 en liðið er gott sem búið að tryggja sér í milliriðlakeppninnar eftir tvo sigra í fyrstu tveimur leikjum sínum gegn Svartfjallalandi og Ungverjalandi. Frábær 41-28 sigur gegn Ungverjum á EM í Serbíu. Solid spilamennska - reyndar frábær á köflum. Gunnar Róbertsson maður leiksins, þvílíkur leikmaður. 12 mörk hjá honum í dag. Hér mjá sjá hann skora tvö mörk á 9 sekúndum. Seinna markið þessi "trademark stuldur". #handbolti #EMU18 pic.twitter.com/sJLNwDi90f

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.