Grænlendingurinn framlengir í Virkinu
Víkingur

Grænlenski línumaðurinn, Ivana Meincke Zeeb leikur með nýliðum Víkings í Olís-deild kvenna á næstu leiktíð en hún hefur framlengt samningi sínum við félagið til eins árs.

Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum seint í gærkvöldi.

,,Það gleður okkur að tilkynna að línumaðurinn Ivana Meincke Zeeb hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við handknattleiksdeild Víkings," segir í tilkynningunni frá félaginu og þar segir ennfremur að Ivana hafi verið mikilvægur hlekkur í liðsheildinni síðustu ár.

Ivana er fædd árið 1995 en hún kom fyrst til Víkings árið 2024 og hefur leikið með félaginu síðustu tvö tímabil. Þar áður lék hún með Stjörnunni og FH.

Ivana er grænlenskur landsliðsmaður sem hefur leikið á stórmótum með grænlenska landsliðinu síðustu ár. Hún skoraði 24 mörk fyrir Víking í Grill66-deildinni á síðustu leiktíð er liðið endaði í 3.sæti deildarinnar og tapaði í undanúrslitum um sæti í Olís-deildinni.

Eftir fjölgun í Olís-deildinni fékk Víkingur sæti í deildinni og leikur í fyrsta skipti í langan tíma í efstu deild kvenna á komandi tímabili.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top