Íslenska U18 ára landslið karla er komið í afar vænlega stöðu á Evrópumótinu í Serbíu eftir tvo sannfærandi sigra í fyrstu tveimur leikjum sínum. Eftir stórsigur á Ungverjalandi bíður lokaleikur riðlakeppninnar gegn Sviss á morgun. Andri Sigfússon, einn af þjálfurum íslenska liðsins, var afar ánægður með frammistöðuna gegn Ungverjum en lagði jafnframt áherslu á að verkefninu væri hvergi nærri lokið. Lokatölur í leiknum voru 41-28. „Við lékum virkilega vel gegn Ungverjum í gær. Varnarleikurinn okkar var frábær stóran hluta leiksins. Við lokuðum á hættulegustu vopn þeirra og þá var eftirleikurinn auðveldari.“ Í fyrri hálfleik varð töluverð skelfing í herbúðum Íslands þegar tveir af lykilmönnum liðsins, Freyr Aronsson og Ómar Darri Sigurgeirsson voru samtímis á varamannabekknum vegna meiðsla. „Það er ekkert launungarmál að við vorum skelkaðir þegar Freyr og Ómar voru komnir útaf samtímis vegna meiðsla á stuttum tíma í fyrri hálfleik. Við höfum á að skipa góðri breidd í liðinu sem svaraði kallinu á þeim tíma. Sem betur fer voru meiðslin smávægileg og þeir héldu fljótlega leik áfram.“ Andri hrósaði leikmönnum sínum fyrir dugnaðinn en sagði jafnframt að liðið mætti ekki slaka á fyrir lokaleik riðilsins. „Strákarnir fá mikið hrós fyrir vinnusemina í leiknum. Þetta er fljótt að gerast og við megum ekki misstíga okkur ef við ætlum okkur með stig upp í milliriðilinn. Leikur gegn hættulegum Svisslendingum er framundan. Þessi frammistaða í dag getur horfið í einu vetfangi með værukærð á laugardaginn.“ Undirbúningurinn fyrir Sviss er þegar hafinn. „Strákarnir gátu lagst ánægðir á koddann í gær en í dag tekur við mikill og góður undirbúningur fyrir næstu andstæðinga.“ Markaskor Íslands í leiknum: Í markinu varði Anton Máni Fransisco Helderrson 8 skot (26%) og Sigurmundur Gísli Unnarsson 9 skot (64%).
Gunnar Róbertsson 12 mörk
Anton Frans Sigurðsson 7 mörk
Alex Unnar Hallgrímsson 5 mörk
Freyr Aronsson 4 mörk
Brynjar Narfi Arndal 3 mörk
Ómar Sigurgeirsson 3 mörk
Patrekur Smári Arnarsson 2 mörk
Logi Finnsson 2 mörk
Kristófer Tómas Gíslason 1 mark
Matthías Dagur Þorsteinsson 1 mark
Bjarki Snorrason 1 mark

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.