ÍBV mætir bandaríska landsliðinu í ágúst
Egill Bjarni Friðjónsson

Karlalið ÍBV heldur í æfingaferð til Hollands dagana 12.–15. ágúst þar sem liðið leikur þrjá vináttuleiki gegn sterkum andstæðingum sem liður í undirbúningi fyrir komandi tímabil í Olís-deildinni.

Fyrsti leikur Eyjamanna verður 13. ágúst gegn hollenska liðinu Volendam, daginn eftir mætir liðið Aalsmeer og ferðinni lýkur síðan 15. ágúst með áhugaverðum leik gegn bandaríska landsliðinu. Ekki er um að ræða opinbert landslið Bandaríkjanna heldur hópur af bandarískum handboltamönnum sem hafa verið í verkefni í Florida síðustu mánuði með það að markmiði að komast í bandaríska landsliðið.

Sigurður Jeffersson leikmaður Hauka verður til að mynda ekki í bandaríska hópnum gegn ÍBV.

Samhliða ferð meistaraflokks verður einnig venslalið ÍBV, HBH, með í för og leikur tvo vináttuleiki á meðan dvölinni stendur.

Æfingaferðin er hluti af undirbúningi ÍBV fyrir komandi keppnistímabil en þetta er ekki í fyrsta skipti sem karlalið ÍBV fer í æfinga- og keppnisferð til Hollands í undirbúningi sínum fyrir keppnistímabil.

Leikjadagskrá ÍBV í Hollandi:

  • 13. ágúst: Volendam
  • 14. ágúst: Aalsmeer
  • 15. ágúst: Bandaríska landsliðið (Team USA)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top