Sáttur eftir riðlakeppnina – Varar við sterkum Króötum
Eyjólfur Garðarsson

Íslenska U18 ára landslið karla tryggði sér sæti í milliriðli Evrópumótsins með 32-27 sigri á Sviss í lokaleik riðlakeppninnar í gær. Ísland tekur tvö stig með sér í milliriðilinn þar sem Króatía og Portúgal bíða á næstu tveimur dögum.

Andri Sigfússon, einn af þremur þjálfurum íslenska liðsins, var ánægður með stöðuna eftir riðlakeppnina en sagði jafnframt að verkefnin fram undan yrðu afar krefjandi.

„Við erum ánægðir með að vera komnir með tvö stig upp í milliriðil. Þar mætum við Króatíu á mánudag og Portúgal á þriðjudag.“

Andri sagði að sigurinn á Sviss hefði verið erfiðari en lokatölurnar gæfu til kynna. „Leikurinn í gær var erfiður þó að úrslitin líti vel út á pappír. Svisslendingarnir voru góðir á báðum endum vallarins. Þeir náðu að slíta vörnina okkar vel í sundur.“

Á sama tíma hafi íslenska liðið sýnt styrk sinn í sóknarleiknum. „Við vorum einnig mjög flottir í leiknum. Við náðum oft að sundurspila Svisslendinga.“

Nú er hvíldardagur hjá íslenska liðinu áður en kemur að fyrsta leik milliriðilsins gegn Króatíu.

„Í dag er hvíldardagur þar sem við fundum og tökum létta æfingu til að undirbúa erfiðan leik gegn Króatíu á mánudaginn. Við erum búnir að vera að fylgjast með Króatíu seinustu daga vitandi að við myndum líklega mæta þeim í milliriðli.“

Andri segir Króata vera með skýran leikstíl sem íslenska liðið þurfi að vera vel undirbúið fyrir.

„Aðalsmerki Króata er alltaf það sama. Öflugur 5-1 varnarleikur, klókindi í sóknarleiknum og mikil ástríða. Þessa baráttu inn á vellinum þurfum við að vinna til að ná hagstæðum úrslitum.“

Þjálfarinn fór einnig yfir stöðu meiddra leikmanna fyrir mikilvæga leikinn.

„Logi Finnsson missteig sig í leiknum í gær. Við bindum vonir við að hann verði orðinn klár gegn Króatíu enda er hann í góðum höndum. Freyr Aronsson er smá bólginn í vinstri þumlinum eftir högg gegn Ungverjum. Hann er óðum að ná fullum bata. Aðrir leikmenn eru við hestaheilsu.“

Ísland og Króatía fara bæði með tvö stig inn í milliriðilinn, en Ungverjaland og Portúgal eru án stiga. Ísland mætir Króatíu á morgun og Portúgal á þriðjudag. Báðir leikirnir hefjast klukkan 15:00 að íslenskum tíma.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top