Eyjamaðurinn, Sigurmundur Gísli Unnarsson einn af þremur markvörðum í íslenska U18 ára karla landsliðinu sem er í eldlínunni á Evrópumótinu í Serbíu þessa dagana sýndi stórkostlega takta í markinu í sigri Íslands gegn Sviss í lokaleik Íslands í riðlinum í gær. Undir blálok fyrri hálfleiks reyndi markvörður Sviss að skora í tómt mark Íslands í stöðunni 17-13 Íslandi í vil, en Ísland var manni færri og hafði tekið markmanninn útaf í sókninni á undan sem mislukkaðist. Á einhvern ótrúlegan hátt tókst Sigurmundi Gísla hinsvegar að koma sér inn á völlinn á örskömmum tíma og kasta sér fyrir skotið og bjarga því að Svisslendingar hefði minnkað muninn í þrjú mörk fyrir hálfleik. Það fór svo að Ísland vann leikinn með fimm mörkum 33-28 en liðið leikur fyrsta leik sinn í milliriðli Evrópumótsins á morgun gegn Króatíu klukkan 15.00. Tilþrif Eyjamannsins má sjá í myndskeiðinu hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.