Fimman er liður á Handkastinu sem hluti af upphitun fyrir keppnistímabilið 2026/2027 sem hefst í byrjun september. Í Fimmunni tekur Handkastið saman lista af hinu og þessu sem Handkastið telur áhugavert og í þessum lista tekur Handkastið saman lista af heimkomum leikmanna fyrir komandi tímabili. Hér að neðan má sjá Fimmuna af heimkomum fyrir tímabilið:
Dagur Árni var seldur á metfé frá KA í Val fyrir síðustu leiktíð. Meiðsli settu strik í reikninginn og var Dagur Árni einungis í hóp í einum leik með Val eftir áramót en hann varð þó Íslands- og deildarmeistari með Val. Nú er Dagur Árni kominn aftur heim í KA og er ætlað stórt hlutverk í spennandi verkefni fyrir norðan.
Eftir tvö ár í þýsku 2.deildinni er Tjörvi Týr kominn aftur heim í Val og er ætlað að fylla skarð Þorgils Jóns Svölu Baldurssonar sem hefur ákveðið að elta ástina til Portúgals. Tjörvi lék með Oppenweiler/Backnang á síðustu leiktíð en liðið vann einn leik í þýsku 2.deildinni. Tjörva þyrstir væntanlega í sigurtilfinningu á nýju tímabili.
Eftir fjölmörg ár í harkinu í Kórnum bæði í Olís og Grill66-deildinni er Hjörtur Ingi kominn aftur heim í Hauka. Hjörtur hefur haldið tryggð í Kópavogsliðið en hann hefur verið eftirsóttur af öðrum liðum síðustu ár. Nú hefur hann hinsvegar ákveðið að koma heim á Ásvelli og gæti fengið það hlutverk að fylla skarð Adams Hauks Baumruk.
Jóhann Geir er kominn aftur heim í Þór eftir dvöl hjá erkifjendunum í KA undanfarin ár. Jóhann Geir er vinstri hornamaður og spilaði með Þór upp alla yngri flokkana og síðan með Akureyri handboltafélagi þegar það var og hét. Hann hefur verið í litlu hlutverki í liði KA undanfarin ár. Gera má ráð fyrir stærra hlutverki hjá Þór í vetur.
Eini maðurinn á þessum lista sem er ekki að koma heim í sitt uppeldisfélag en heimkoma vissulega en Dagur Sverrir er mættur í Stjörnuna eftir dvöl í Svíþjóð undanfarin ár. Fyrst hjá Karlskrona og nú síðast með Vinslövs í sænsku 2.deildinni. Það verður fróðlegt að sjá heimkomu Dags Sverris sem var óvænt keyptur til Karlskrona á sínum tíma eftir að ÍR féll úr Olís-deildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.