Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson hefur framlengt samningi sínum við spænska stórliðið Barcelona til sumarsins 2029. Félagið tilkynnti þetta á samfélagsmiðla sínu sinni fyrr í dag. Viktor gekk til liðs við Barcelona fyrir tímabilið 2025/26 eftir eitt tímabil með Wisła Płock í Póllandi og skrifaði þá undir samning til ársins 2027. Með nýja samningnum bætast tvö ár við dvöl hans hjá katalónska stórveldinu en Viktor var í janúar orðaður við þýska félagið Gummersbach. Í tilkynningu frá Barcelona kemur fram að Viktor hafi á skömmum tíma fest sig í sessi sem einn besti markvörður Evrópu. Frammistaða hans á síðasta tímabili, bæði með Barcelona og íslenska landsliðinu, hefur vakið verðskuldaða athygli og félagið hefur því ákveðið að binda hann til lengri tíma. Viktor Gísli fær nýjan markmann með sér í markmannsteymi Barcelona en Daninn, Emil Nielsen gekk í raðir Veszprém í Ungverjalandi á meðan Sergey Hernandez gekk í raðir Barca frá Magdeburg.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.