Eftir sannfærandi 41-29 sigur á Portúgal í lokaumferð milliriðilsins hefur íslenska U18 ára karla landsliðið tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum þar sem Þýskaland verður mótherjinn á fimmtudaginn. Íslenska liðið hefur farið með miklum glæsibrag í gegnum mótið og unnið alla fimm leiki sína á mótinu og það allt frekar sannfærandi, vægast sagt. Strákarnir unnu riðil sinn með því að vinna Svartfjallaland, Sviss og Ungverjaland. Næst vann liðið síðan Króatíu og Portúgal í milliriðlinum sem tryggði liðinu besta árangur mótsins hjá þeim liðum sem unnu sér sæti í 8-liða úrslitum. Frammistaðan hefur verið afar sannfærandi. Liðið hefur leikið af miklum krafti í vörn, keyrt upp hraðan leik þegar tækifæri hafa gefist og sýnt mikla breidd þar sem margir leikmenn hafa lagt sitt af mörkum. Sigurinn á Portúgal var enn ein staðfestingin á því að Ísland á fullt erindi meðal bestu liða Evrópu í þessum aldursflokki. Fyrir leikinn við Portúgal var ljóst að íslenska liðið hafði þegar tryggt sér sæti í átta liða úrslitum. Hins vegar var mikið undir því sigur í leiknum tryggði Íslandi efsta sætið í milliriðlinum og um leið besta samanlagða árangur allra liðanna sem komust áfram úr milliriðlunum. Það skilaði Íslandi hagstæðasta mögulega mótherjanum í átta liða úrslitum. Þrátt fyrir sterka handboltahefð Þjóðverja enduðu þeir í þriðja sæti í sínum milliriðli. Þjóðverjar tryggðu sér þó sæti í átta liða úrslitum þar sem þeir voru með næstbesta árangurinn af þeim þremur liðum sem höfnuðu í þriðja sæti milliriðlanna. Sagan gefur tilefni til bjartsýni. Ísland hefur aðeins einu sinni áður orðið Evrópumeistari í U18 ára flokki, þegar liðið stóð uppi sem sigurvegari árið 2003. Einn af þjálfurum núverandi landsliðs, Ásgeir Örn Hallgrímsson, var lykilmaður í því sigursæla liði og fær nú tækifæri til að leiða nýja kynslóð íslenskra handknattleiksmanna í átt að sama afreki í þetta sinn af hliðarlínunni. Leikurinn gegn Þýskalandi fer fram á fimmtudaginn klukkan 15:00 og þar verður sæti í undanúrslitum Evrópumótsins í húfi. Gengi Þýskalands á Evrópumótinu hingað til:
Þýskaland - Frakkland 28-29 (tap)
Slóvenía - Þýskaland 30-28 (tap)
Tyrkland - Þýskaland 23-45 (sigur)
Þýskaland - Serbía 27-27 (jafntefli)
Þýskaland - Ítalía 48-26 (sigur)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.