Ágúst Jóhannsson, þjálfari deildar- og Íslandsmeistara Vals og landsliðsþjálfari U20 ára karla, hefur fylgst náið með glæsilegu gengi íslenska U18 ára landsliðsins á Evrópumótinu í Serbíu. Að mati Ágústs hefur liðið alla burði til að fara alla leið í keppninni og jafnvel standa uppi sem Evrópumeistari. Valsmenn eiga fimm fulltrúa í íslenska landsliðshópnum, sem skýrir að hluta hvers vegna Ágúst hefur fylgst svo vel með mótinu. Þar ber hæst Gunnar Róbertsson, sem var í stóru hlutverki hjá Val á síðustu leiktíð og hefur verið einn af lykilmönnum íslenska liðsins á mótinu. Auk hans eru markvörðurinn, Anton Máni Francisco Heldersson, hinir örvhentu Sigurður Atli Ragnarsson og Bjarki Snorrason og Logi Finnsson allir í landsliðshópnum. ,,Ég er ánægður með hvernig liðið hefur spilað og við höfum verið að rúlla þessum leikjum upp,“ sagði Ágúst í samtali við mbl.is en í gær vann liðið fimmta sigurinn sinn á mótinu og tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum. Þar bíða Þjóðverjar strákanna en 8-liða úrslitin fara fram á morgun klukkan 15:00. Ágúst, sem hefur áralanga reynslu af þjálfun yngri landsliða Íslands samhliða starfi sínu hjá Val, er sannfærður um að möguleikar íslenska liðsins séu miklir. „Ég hef fulla trú á því að liðið geti farið langt og hæglega komist á verðlaunapall. Það kæmi mér heldur ekkert á óvart ef strákarnir kæmu heim með gullið.“ Þrátt fyrir bjartsýnina minnir hann á að úrslitakeppni stórmóta gefi lítið svigrúm fyrir mistök. „Strákarnir þurfa að halda einbeitingu allan tímann og það má auðvitað lítið út af bregða,“ sagði Ágúst Jóhannsson. U18 ára landslið Íslands hefur verið eitt mest sannfærandi lið mótsins hingað til og með sigri á Þýskalandi í átta liða úrslitum tekur liðið enn eitt skref í átt að því að endurtaka sögulega Evrópumeistaratitilinn sem Ísland vann síðast árið 2003.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.