Gera ekki ráð fyrir Viggó í upphafi tímabils
Erlangen

Viggó Kristjánsson, landsliðsmaður Íslands og leikmaður þýska úrvalsdeildarfélagsins HC Erlangen, vinnur nú markvisst að endurkomu sinni eftir hnéaðgerð sem hann gekkst undir fyrir tæpum tveimur mánuðum.

Viggó fór í aðgerð vegna brjóskskemmda í hné og hefur því misst af undirbúningstímabili Erlangen fyrir komandi keppnistímabil. Þrátt fyrir það er hann bjartsýnn á framhaldið.

„Þegar maður sleppur við hlaupa- og styrktaræfingarnar, þá er það ekki svo slæmt,“ sagði Viggó í viðtali við Franken Fernsehen. Hann viðurkennir þó að það sé mun erfiðara að fylgjast með liðsfélögum sínum af hliðarlínunni.

„Þegar æfingaleikirnir hefjast og líka í lok síðasta tímabils þegar ég missti af mörgum leikjum, þá var það virkilega erfitt.“

Þrátt fyrir meiðslin og þá staðreynd að hann muni ganga til liðs við SG Flensburg-Handewitt sumarið 2027 er metnaðurinn enn mikill hjá Íslendingnum.

„Markmið mitt er klárlega að hjálpa HC Erlangen að berjast um sæti meðal tíu efstu liðanna í Bundesligunni,“ segir Viggó.

Johannes Sellin, þjálfari Erlangen, efast ekki um hugarfar íslenska landsliðsmannsins þótt ljóst sé að hann yfirgefi félagið eftir tímabilið 2026/27. „Viggó er þannig leikmaður að hann vill sýna enn betur að hugurinn er algjörlega hjá HC Erlangen á meðan hann er hér,“ sagði Sellin.

Í frétt á handball-world er sagt frá því að gert sé ráð fyrir því að Viggó verði ekki klár í fyrstu tvo leiki Erlangen á tímabilinu í það minnsta, gegn Frisch Auf Göppingen og TSV Hannover-Burgdorf. Þar er þó haft eftir landsliðsmanninum að hann stefni ótrauður á að snúa sem fyrst aftur inn á völlinn og hjálpa liðinu að ná markmiði sínu um að enda meðal tíu bestu liða þýsku Bundesligunnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top