Reynir Þór fór á kostum í sigri Melsungen
Melsungen

Reynir Þór Stefánsson sem fagnar afmælis í dag átti frábæran leik þegar MT Melsungen lagði HSV Hamburg 35-30 í æfingaleik þýsku úrvalsdeildarliðanna á mánudag.

Í umfjöllun félagsins eftir leikinn var íslenski landsliðsmaðurinn sérstaklega tekinn út fyrir sviga en þar sagði að hann hefði „spilað sig í sviðsljósið“ með frammistöðu sinni. Reynir var markahæstur í liði Melsungen með níu mörk, þar af tvö úr vítaköstum.

MT Melsungen hóf leikinn illa og lenti 4-1 undir á fyrstu mínútunum. Hamburg hélt frumkvæðinu lengi vel og leiddi með fjórum mörkum í hálfleik, 19-15. Reynir var hinsvegar einn helsti drifkraftur gestanna í endurkomunni. Hann skoraði meðal annars þrjú mörk í röð í fyrri hálfleik og minnkaði muninn í 13-11 þegar Hamburg virtist hafa leikinn í sínum höndum.

Í seinni hálfleik tók Melsungen öll völd á vellinum. Varnarleikurinn þéttist og sóknarleikurinn small saman, þar sem Reynir hélt áfram að fara fyrir liði sínu. Melsungen vann síðari hálfleikinn 20-11 og fagnaði að lokum öruggum 35-30 sigri.

Reynir Þór er á leið inn í sitt annað tímabil með MT Melsungen en hann fór á kostum með Fram í Olís-deildinni tímabilið 2024/2025 er hann varð Íslands- og bikarmeistari með liðinu og var allt í öllu í sóknarleik Fram. Hann missti af öllu síðasta undirbúningstímabili vegna veikinda og var því lengi frá keppni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top