Mynd sem Arnar Freyr Ársælsson birti á Instagram í vikunni vakti athygli Handkastsins. Þar sést hann ásamt Einari Rafni Eiðssyni eftir æfingu hjá FH á undirbúningstímabilinu og skrifaði Arnar við myndina: „Sameinaðir en stífir.“ Einar Rafn gekk til liðs við FH frá KA í sumar en þeir félagar þekkjast vel. Þeir léku saman með FH á sínum tíma og síðar einnig með KA. Það sem vakti hins vegar athygli Handkastsins er að Arnar Freyr hefur ekki leikið í Olísdeildinni undanfarin ár. Hann lék síðast með Stjörnunni en höfuðmeiðsli urðu til þess að hann þurfti að leggja skóna á hilluna. Síðan þá hefur hann aðeins spilað með ÍH í 2. deildinni, fyrir um tveimur og þremur árum síðan. Arnar Freyr lék með FH á árunum 2016 til 2021 áður en hann gekk til liðs við KA. Eftir dvölina fyrir norðan lá leiðin í Stjörnuna þar sem leikmannaferill hans í Olís-deildinni tók óvæntan endi. Handkastið hafði samband við Arnar Frey í kjölfar Instagram-færslunnar og spurði hvort stuðningsmenn FH mættu fara að binda vonir við endurkomu hans í Kaplakrika. „Nei, þetta er alls ekki komið svo langt á leið. Ég er bara aðeins að sprikla með liðinu núna og vera með,“ sagði Arnar Freyr í samtali við Handkastið. Það verður því að koma í ljós á næstunni hvort Arnar Freyr taki þá ákvörðun að koma á fullu aftur inn í Olís-deildina. Myndin sem birtist á samfélagsmiðlum í vikunni:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.