KA/Þór í Olís deild kvenna er að berast liðsauki fyrir tímabilið samkvæmt heimildum Handkastsins. Katrín Vilhjálmsdóttir hefur verið að æfa með liðinu á undirbúningstímabilinu en hún lék lengi vel með liðinu á árum áður. Lék hún með KA/Þór í meira en áratug á sínum tíma og einnig lék hún með FH eitt tímabil á meðan hún bjó í Reykjavík. "Ég ætla að vera með í vetur" sagði Katrín í samtali við Handkastið. Katrín, sem nýlega er orðin fertug, var partur af liði KA/Þór sem vann allt sem hægt er að vinna vorið 2021 undir stjórn Andra Snæs Stefánssonar. Vegna óléttu tók hún aðeins þátt í 5 leikjum og skoraði 5 mörk það tímabil. Hefur hún ekkert spilað með KA/Þór síðan þá. Katrín getur leyst báðar hornastöðurnar og er kraftmikill varnarmaður. Ljóst er að hún mun bæta breiddina í leikmannahópi KA/Þór.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.