Viktor Gísli stoltur af yngri bróður sínum
Sævar Jónasson

Á meðan íslenska U18 ára landsliðið undirbýr sig fyrir stórleik gegn Þýskalandi í 8 liða úrslitum Evrópumótsins fylgist landsliðsmarkvörðurinn og markvörður Evrópumeistara Barcelona, Viktor Gísli Hallgrímsson grannt með gangi mála. Ástæðan er ekki síst sú að litli bróðir hans, Alex Unnar Hallgrímsson, er hluti af íslenska liðinu sem hefur farið taplaust í gegnum mótið.

Alex Unnar sem leikur með Fram hefur átt gott mót í vinstra horninu hjá íslenska landsliðinu og verið einn af þeim leikmönnum sem hafa lagt sitt af mörkum til glæsilegrar frammistöðu Íslands.

Í samtali við Vísi segist Viktor Gísli vera afar stoltur af bróður sínum og þeirri vegferð sem hann hefur farið síðustu ár.

„Þetta er búinn að vera draumur hans í mjög langan tíma. Hann var ekki valinn í fyrstu úrtökin, það var erfitt fyrir hann en hann er búinn að vera helvíti duglegur síðustu tvö til þrjú árin. Ég er mjög stoltur af honum. Það er búið að ganga vel hjá honum líka og gaman að sjá alla vinnuna sem hann hefur lagt í þetta skila sér í þessu. Þetta er hörku lið.“

Foreldrar bræðranna eru á Evrópumótinu og hafa fylgt liðinu eftir frá upphafi. Viktor segir þau lýsa frábærri stemningu í kringum hópinn og gleðjast yfir því að sjá íslenskt yngra landslið ná svona góðum árangri.

Viktor þekkir sjálfur vel hvernig það er að upplifa stórmót í yngri landsliðum en hann var í íslenska U18 ára liðinu sem vann silfurverðlaun á Evrópumótinu árið 2018. Hann segir þær minningar standa upp úr á ferlinum og hefur hvatt Alex til að njóta augnabliksins.

„Þetta eru bestu minningarnar sem ég á úr handboltanum. Ég sagði það við Alex að njóta þess að vera á þessum mótum. Þetta eru lang skemmtilegustu mótin sem þú munt nokkurn tímann taka þátt í. Félagslega séð og upp á minningarnar að gera.“

Ísland mætir Þýskalandi í átta liða úrslitum Evrópumóts U18 ára landsliða klukkan 15:00 í dag þar sem sæti í undanúrslitum er undir.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top