Í nýjasta þætti Handkastsins var hitað upp fyrir Olís-deildir karla og kvenna. Þar var farið yfir stöðu liðanna mánuði fyrir mót og hvar liðin gætu mögulega styrkt sig fyrir komandi átök. Á ársþingi HSÍ í maí var tillaga Gróttu samþykkt um að fjölga liðum í Olís-deild kvenna úr 8 liðum í 10. Með því fékk Grótta og Víkingur sæti í Olís-deildinni en Grótta endaði í 2.sæti Grill66-deildarinnar í fyrra og tapaði í umspili gegn Stjörnunni á meðan Víkingur endaði í 3.sæti Grill66-deildarinnar og tapaði í undanúrslitum umspilsins gegn Gróttu. Rætt var um stöðu kvennaliðs Víkings í nýjasta þætti Handkastsins þar sem Stymmi klippari og Davíð Már Kristinsson ræddu leikmannamál liðsins og ákvörðun Víkings að þiggja sæti í deild þeirra bestu þrátt fyrir að hafa misst töluvert af mannskap frá síðustu leiktíð. ,,Þetta verður erfitt tímabil hjá þeim en ég ætla ekki að gerast svo kræfur og segja að þær fái ekki eitt stig, ég hef brennt mig á því áður,” sagði Stymmi klippari. ,,Þær eru búnar að semja við einn útlending og eru ekkert fleiri leikmenn á leiðinni? Þær þurfa að fá 3-4 útlendinga í viðbót ef þær ætla að eiga séns í vetur," bætti Davíð Már við. Á dögunum samdi liðið við Svartfellinginn, Anitu Muratovic. ,,Það er gallinn við íslenska markaðinn að þú ert ekkert mikið að sækja í eitthvað hér innanlands, það er voða lítið að frétta af innlendum markaði og það hefði verið gott að fækka leikmönnum niður í 14 á leikskýrslu," sagði Stymmi klippari en Stjarnan lagði fram þá tillögu að fækka leikmönnum á leikskýrslu í meistaraflokki kvenna úr 16 leikmönnum niður í 14. Sú tillaga var feld. ,,Þetta verður gríðarlega erfitt fyrir þær. Þær lentu í 3.sæti í Grill66-deildinni og hafa misst einhverja átta leikmenn. Ég skil ekki þessa ákvörðun hjá þeim að taka sætið í Olís-deildinni ef ég á að segja alveg eins og er. Hafdís Iura er hætt, Auður Brynja er hætt, Valgerður Elín er farin í Stjörnuna og hún var lang markahæst hjá þeim í fyrra, það segir sig sjálft að mannskapslega séð eru þær ekki tilbúnar í þessa deild. Það hefði verið miklu skynsamlegra að vera í Grill66-deildinni. Í ofanálag er félagið með óreynt þjálfarapar í meistaraflokki. Það hefði verið miklu betra bæði fyrir leikmenn og þjálfara að vera í Grillinu og fá að byggja upp í friði.” ,,En ef Víkingur fær fjóra erlenda leikmenn í viðbót, þá gæti þetta mögulega bara verið flott," sagði Davíð Már að lokum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.