Harpa María vonast til að vera klár í upphafi tímabils
Kristinn Steinn Traustason

Landsliðskonan og leikmaður Fram, Harpa María Friðgeirsdóttir segist vonast til að geta verið klár þegar Olís-deild kvenna hefst í byrjun september.

Fram fær nýliða Gróttu í heimsókn í 1.umferðinni og heimsækir síðan Stjörnuna í 2.umferðinni.

,,Ég fór í speglun á hné um miðjan júní eftir meiðsli í úrslitakeppninni, aðgerðin gekk vel og endurhæfingin sömuleiðis. Ég er aðeins byrjuð að hlaupa og hoppa á ný og vonast til að geta tekið þátt á handboltaæfingum á næstu vikum. Ef allt heldur áfram að ganga vel þá stefni ég á að vera með í fyrsta leik tímabilsins," sagði Harpa María í samtali við Handkastið.

Harpa María sem er uppalin hjá Fram lék með íslenska landsliðinu í vor eftir að Dana Björg Guðmundsdóttir meiddist. Harpa var næst markahæsti leikmaður Fram á síðustu leiktíð með 109 mörk í 23 leikjum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top