Lettinn, Endijs Kusners hefur kvatt Ísafjörð eftir sex ára dvöl hjá Herði og heldur nú í ný ævintýri í Þýskalandi. Kusners hefur gengið í raðir DHK Flensborg, sem leikur í þriðju efstu deild Þýskalands, eftir að hafa verið einn af lykilmönnum Harðar undanfarin ár. Kusners, sem hefur á sama tíma verið fastamaður í lettneska landsliðinu, segir að tíminn á Íslandi hafi undirbúið hann vel fyrir næsta skref á ferlinum. „Ég held að þetta sé rétti tíminn. Ég hef spilað í sex ár á Íslandi og öðlast mikla reynslu. Það hefur einnig hjálpað mér mikið sem leikmanni að vera hluti af lettneska landsliðinu. Nú finnst mér ég vera tilbúinn að takast á við nýja áskorun á hærra stigi og sjá hvað ég get gert í þýskum handbolta,“ segir Kusners í samtali við Handkastið. Hann fékk tækifæri til að kynnast nýjum liðsfélögum sínum hjá Flensborg áður en gengið var frá samningi en hann æfði með liðinu í eina viku. Flensborg verður því næsti áfangastaður eftir sex ár á Ísafirði, þar sem Kusners segir að hann hafi átt margar góðar stundir. „Ég vil þakka öllum hjá Herði fyrir þessi sex ár. Ég á margar góðar minningar þaðan og kynntist mjög góðu fólki. Ég kann virkilega að meta þann stuðning sem ég fékk á meðan ég var hjá félaginu. Nú hlakka ég til að hefja nýjan kafla, en ég mun alltaf vera þakklátur fyrir tímann minn hjá Herði.“ Kusners hefur skýr markmið fyrir fyrsta tímabilið í Þýskalandi. Hann vill aðlagast nýju umhverfi fljótt, halda áfram að bæta leik sinn og vinna sér sess sem mikilvægur leikmaður hjá Flensborg. „Persónulega vil ég aðlagast fljótt, bæta minn leik og verða mikilvægur leikmaður fyrir liðið. Ég vil læra af þessu nýja umhverfi og halda áfram að þróast sem leikmaður.“ „Sem lið vil ég að við eigum gott tímabil, keppum af krafti að markmiðum okkar og verðum betri eftir því sem líður á tímabilið.“ Eftir sex ár á Íslandi er eðlilega ýmislegt sem Kusners skilur eftir sig. Það sem hann segist helst eiga eftir að sakna eru tengslin sem hann hefur myndað hér á landi. „Líklega mun ég sakna fólksins sem ég kynntist á þessum tíma og vinina sem ég eignaðist. Ég mun líka sakna ákveðinna hluta af hversdagslífinu á Íslandi, sérstaklega vinnunnar minnar.“ Þrátt fyrir söknuðinn er Kusners spenntur fyrir því sem fram undan er. „Ég er mjög spenntur fyrir því að hefja nýjan kafla í Þýskalandi og upplifa eitthvað öðruvísi.“ Kusners staðfestir jafnframt að áhugi hafi verið á honum frá íslensku Olís-deildinni áður en hann ákvað að halda til Þýskalands. „Já, það var lið sem gerði mér tilboð. Tilboðið var gott og ég ber mikla virðingu fyrir því liði, en ég valdi Flensborg.“Vill verða mikilvægur leikmaður
Mun sakna fólksins á Íslandi
Fékk tilboð frá Olís-deildarliði

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.