Árni Bragi lék með Aftureldingu í sigri gegn Þór
Egill Bjarni Friðjónsson

Árni Bragi Eyjólfsson leikmaður Aftureldingar í Olís-deild karla síðustu ár lék með liðinu í æfingaleik gegn Þór á föstudagskvöldið.

Samningur Árna Braga við Aftureldingu rann út eftir síðasta tímabil og hefur verið tvísýnt um það hvort hann myndi leika með liðinu á komandi tímabili. Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur Árni Bragi hinsvegar tekið ákvörðun um að leika með liðinu og hefur nú þegar skrifað undir nýjan samning við félagið.

Afturelding hafði betur í leiknum gegn Þór, 39-34 en um var að ræða fyrsta æfingaleik liðanna á undirbúningstímabilinu.

Afturelding mætir með nýja þjálfara í brúnni, þá Hrannar Guðmundsson og Ingimund Ingimundarson.

Árni Bragi er reynslu mesti leikmaður Aftureldingar og því gríðarlega jákvæðar fréttir fyrir Mosfellinga að hann hafi ákveðið að leika með liðinu á komandi tímabili.

Hér að neðan má sjá mynd úr æfingaleiknum á föstudaginn sem Afturelding birti á samfélagsmiðlum sínum, þar sem má sjá Árna Braga grípa boltann í einni af fjölmörgum sóknum liðsins í leiknum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top