Fram lék þrjá æfingaleiki á þremur dögum – Grill66 deildarliðin í basli
J.L.Long

Tólf æfingaleikir fóru fram hér á landi á síðustu dögum sem Handkastið veit af. Allir fóru þeir fram hér á suðurhorni landsins fyrir utan einn leik, sem fram fór á Tenerife.

Á fimmtudaginn fóru fram þrír leikir. Þrefaldir meistarar Vals unnu Fram í kvennaflokki með fjórum mörkum 29-25 en mikilvæga leikmenn vantaði hjá báðum liðum.

Grill66-deildarlið ÍR sem féll úr Olís-deildinni vann síðan sjö marka sigur á Fram í Skógarselinum 40-33 og þá unnu nýliðar Víkings í Olís-deildinni, Stjörnuna þar sem bræður mættust á hliðarlínunni, Aðalsteinn Eyjólfsson og Sverrir Eyjólfsson. Víkingur hafði betur í leiknum með tveimur mörkum 33-31.

Á föstudaginn fóru einnig fram þrír leikir, tveir í karlaflokki og einn í kvennaflokki. Í Kórnum tóku nýliðar HK í Olís-deild kvenna á móti ÍR. ÍR hafði betur í leiknum með einu marki 28-27 en liðið náði stóru forskoti í fyrri hálfleik en HK saxaði niður forskotið þegar leið á leikinn. Bæði lið eru með nýja þjálfara í brúnni og verður gaman að fylgjast með liðunum í upphafi nýs tímabils.

Bikarmeistarar Hauka töpuðu með tveimur mörkum 30-28 gegn Fram en Fram lék æfingaleik, fimmtudag, föstudag og laugardag og á sama tíma vann Afturelding fimm marka sigur á Þór í Mosfellsbænum 39-34.

Á laugardaginn fóru fram sex leikir. Kvennalið HK vann níu marka sigur á Fjölni 31-22, Stjarnan vann tólf marka sigur á Aftureldingu 36-24 eftir að hafa verið 22-13 yfir í hálfleik og á Tenerife hafði Grótta betur gegn FH 32-15 eftir að hafa verið 16-9 yfir í hálfleik. Þrjú Olís-deildarlið með þrjá sigra gegn Grill66-deildarliðum og allt nokkuð sannfærandi sigrar.

Í Kórnum gerðu HK og Valur jafntefli 29-29 þar sem Bjarni í Selvindi var markahæstur hjá Val með tíu mörk og Arnór Snær Óskarsson skoraði níu mörk. Andri Finnsson skoraði fjögur, Tjörvi Týr Gíslason 3, Jón Ásgeir Eyjólfsson 2 og Ágúst Ingi Óskarsson og Daniel Montoro skoruðu eitt mörk hvor. Jens Sigurðarson var með 7 varin skot og Björgvin Páll Gústavsson sex.

FH, undir stjórn Arons Pálmarssonar vann þriggja marka sigur á ÍR, 41-38 í miklum markaleik og þá vann Þór tveggja marka sigur gegn Fram í Lambhagahölinni 40-38.

Hér er hægt að fylgjast með öllum æfingaleikjum liðanna í aðdraganda Íslandsmótsins. Félög eru hvatt til að uppfæra listann með því að hafa samband við Handkastið og einnig senda Handkastinu upplýsingar um leikina, með úrslitum, markaskorurum og öllu sem skiptir máli.

Fimmtudagur, 6.ágúst:
17:30 Fram - Valur (Lambhagahöllin) - kvenna Úrslit: 25-29
XX:XX ÍR - Fram (Óljóst) - karla Úrslit: 40-33
XX:XX Víkingur - Stjarnan (Virkið) - karla Úrslit: 33-31

Föstudagur, 7.ágúst:
XX:XX HK - ÍR (Kórinn) - kvenna Úrslit: 27-28
17:30 Haukar - Fram (Ásvellir) - karla Úrslit: 28-30
18:00 Afturelding - Þór (Varmá) - karla Úrslit: 39-34

Laugardagur, 8.ágúst:
10:00 HK - Fjölnir (Kórinn) - kvenna Úrslit: 31-22
11:00 Stjarnan - Afturelding (Heklu-höllin) - kvenna Úrslit: 36-24 (22-13)
11:00 HK - Valur (Kórinn) - karla Úrslit: 29-29
XX:XX ÍR - FH (Skógarsel) - karla Úrslit: 38-41
XX:XX Fram - Þór (Lambhagahöllin) - karla Úrslit: 38-40
XX:XX Grótta - FH (Tenerife) - kvenna Úrslit: 32-15 (16-9)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top