Íslenska U18 ára landsliðið leik keppni á Evrópumótinu í Serbíu með því að vinna fjögurra marka sigur á Ungverjum 35-31. íslenska liðið lauk þar með keppni í 5.sæti en liðið vann sjö leiki af átta á Evrópumótinu en liðið tapaði einungis gegn Þjóðverjum í 8-liða úrslitum keppninnar. Íslensku strákarnir voru staðráðnir í að enda mótið með sigri, líkt og Andri Sigfússon einn af þremur þjálfurum liðsins sagði í viðtali við Handkastið eftir sigurinn gegn Frökkum á föstudaginn. Það sást hinsvegar ekki í byrjun leiks þar sem Ungverjar hófu leikinn töluvert betur og höfðu mikla yfirburði í leiknum. Ungverjar náðu mest fimm marka forystu í stöðunni 4-9, 5-10 og 6-11. Íslenska liðið rankaði hinsvegar við sér fyrir hálfleik en staðan var jöfn í hálfleik 17-17. Ungverjar hófu seinni hálfleikinn betur og komust fljótlega í þriggja marka forystu í stöðunni 18-21. Íslenska liðið jafnaði hinsvegar metin í stöðunni 24-24 og þá var ekki aftur snúið. Mest náði Ísland sex marka forystu í stöðunni 32-26 og vann að lokum fjögurra marka sigur 35-31. Ómar Darri Sigurgeirsson var markahæstur í liði Íslands með átta mörk, Valsarnir, Logi Finnsson, Gunnar Róbertsson og Bjarki Snorrason skoruðu fimm mörk hver. Markaskorar Íslands: Ómar Darri Sigurgeirsson 8, Bjarki Snorrason 5, Gunnar Róbertsson 5, Logi Finnsson 5, Freyr Aronsson 3, Brynjar Narfi Arndal 2, Alex Unnar Hallgrímsson 2, Anton Frans Sigurðsson 2, Patrekur Smári Arnarsson 1, Kristófer Tómas Gíslason 1, Matthías Dagur Þorsteinsson 1. Markvarsla: Anton Máni Francisco Heldersson 6, 30%, Sigurmundur Gísli Unnarsson 6, 29%.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.