Alex Unnar valinn í úrvalslið EM
Fram

Framarinn, Alex Unnar Hallgrímsson var í gær valinn í úrvalslið Evrópumóts U18 ára landsliða sem lauk í Serbíu í gær. Alex Unnar er eini Íslendingurinn í úrvalsliðinu eftir frábæra frammistöðu íslenska liðsins á mótinu.

Þýskaland og Slóvenía eiga flesta fulltrúa í úrvalsliðinu, eða þrjá hvor. Þjóðverjar lögðu Slóvena að velli í úrslitaleiknum og fögnuðu Evrópumeistaratitlinum.

Alex Unnar er valinn besti vinstri hornamaður mótsins. Hann var einn af lykilmönnum íslenska liðsins sem hafnaði í fimmta sæti eftir að hafa tapað fyrir Þýskalandi í átta liða úrslitum. Það var eini ósigur Íslands á mótinu. Alex Unnar er yngri bróðir Viktors Gísla Hallgrímssonar.

Emil Kvistgaard Bak frá Danmörku var valinn besti leikstjórnandinn en Danir unnu til bronsverðlauna. Adrian Sola Basterra frá Spáni var valinn besta hægri skyttan.

Jaka Podvrsic, lykilmaður Slóveníu, var svo valinn verðmætasti leikmaður mótsins. Slóvenía lék í fyrsta sinn til úrslita á mótinu og Podvrsic átti stóran þátt í frábærri frammistöðu liðsins. Þjóðverjar áttu þrjá leikmenn í úrvalsliðinu. Tjorven Knackstedt var valinn besti markvörðurinn en hann átti meðal annars stórkostlegan leik í sigri Þjóðverja á Íslandi í 8-liða úrslitum mótsins, Julius Eisend besta vinstri skyttan og Malte Martin Elze besti línumaðurinn.

Maks Ilc frá Slóveníu var valinn besti hægri hornamaðurinn og Tjas Erculj besti varnarmaðurinn.

Yonathan Pelach frá Ísrael varð markahæsti leikmaður mótsins með 97 mörk. Ísrael endaði í tíunda sæti. Athygli vekur að Ísrael á markakóng mótsins annað Evrópumótið í röð, en Asaf Sharon varð markahæstur á EM í Svartfjallalandi fyrir tveimur árum.

Úrvalslið EM U18 2026

  • Markvörður: Tjorven Knackstedt (Þýskalandi)
  • Vinstri horn: Alex Unnar Hallgrímsson (Íslandi)
  • Vinstri skytta: Julius Eisend (Þýskalandi)
  • Leikstjórnandi: Emil Kvistgaard Bak (Danmörku)
  • Línumaður: Malte Martin Elze (Þýskalandi)
  • Hægri skytta: Adrian Sola Basterra (Spáni)
  • Hægri horn: Maks Ilc (Slóveníu)
  • Varnarmaður: Tjas Erculj (Slóveníu)
  • Markakóngur: Yonathan Pelach (Ísrael) – 97 mörk
  • MVP: Jaka Podvrsic (Slóveníu)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top