Sveinn Andri yfirgefur Stjörnuna
Sævar Jónsson

Leikstjórnandinn Sveinn Andri Sveinsson mun ekki leika með Stjörnunni í Olís-deild karla á komandi tímabili. Þar með lýkur tveggja ára dvöl hans í Garðabænum.

Sveinn Andri staðfesti þetta í samtali við Handkastið. Hann er á leið úr landi þar sem hann ætlar að setjast á skólabekk í Danmörku, nánar tiltekið í Árósum.

Sveinn Andri gekk til liðs við Stjörnuna sumarið 2024 en dvöl hans í Garðabænum hefur einkennst af miklum meiðslavandræðum. Hann varð fyrir alvarlegum meiðslum í æfingaleik á undirbúningstímabilinu fyrir síðustu leiktíð og þurfti í kjölfarið að gangast undir aðgerð. Af þeim sökum kom hann lítið við sögu með Stjörnunni á tímabilinu.

Sveinn Andri náði aðeins að leika þrjá leiki með Stjörnunni á síðustu leiktíð og skoraði í þeim tvö mörk.

Ekki liggur enn fyrir hvort hann muni halda áfram að leika handbolta samhliða náminu í Árósum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top