Markvörðurinn fyrrverandi, Lárus Helgi Ólafsson hefur skrifað undir samning við handknattleiksdeild ÍR um að koma inn í þjálfarateymi meistaraflokks kvenna og sinna markmannsþjálfun liðsins. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í gær. Lárus þekkir vel til í Breiðholtinu enda kom hann ungur að árum til félagsins og spilaði sína fyrstu meistaraflokksleiki með ÍR. Hann lék sem markvörður í efstu deild í yfir áratug og býr yfir mikilli reynslu en hann lék síðast í Olís-deild karla tímabilið 2023/2024 með Fram. ,,Það eru gleðitíðindi að Lalli sé aftur mættur í Breiðholtið og við hlökkum til að sjá hann láta til sín taka í Skógarselinu," segir í tilkynningunni frá ÍR. Davíð Georgsson er nýr þjálfari kvennaliðs ÍR og með honum er enginn annar en framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar ÍR, Björgvin Þór Hólmgeirsson. Nú hefur Lárus Helgi Ólafsson bæst inn í hópinn. ÍR endaði í 4.sæti Olís-deildarinnar á síðustu leiktíð en Grétar Áki Andersen var látinn taka pokann sinn eftir tímabilið þrátt fyrir að um var að ræða besta árangur félagsins. Það verður því áhugavert að fylgjast með nýju þjálfarateymi ÍR á komandi tímabili.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.