Sjá son Snorra Steins skora sirkusmark á EM
EHF

Valsarinn, Bjarki Snorrason skoraði glæsilegt mark fyrir U18 ára lið Íslands á Evrópumótinu um síðustu helgi er hann skoraði svokallað sirkusmark í sigri Íslands gegn Frakklandi.

Bjarki fékk góða sendingu frá Haukamanninum, Frey Aronssyni upp í loftið og sveif Bjarki inn í teiginn og skoraði framhjá markverði Frakka. Ísland endaði í 5.sæti Evrópumótsins en liðið vann alla sína leiki á mótinu að undanskildum leik gegn Þjóðverjum í 8-liða úrslitum mótsins.

Var mark Bjarka valið eitt af fimm bestu mörkum úrslitakeppninnar. Bjarki er sonur landsliðsþjálfarans, Snorra Steins Guðjónssonar sem var einnig í þjálfarateymi U18 ára landsliðsins á EM.

Markið hjá Bjarka má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top