Sólin skín allan daginn svo það er erfitt að vera í vondu skapi
Benfica

Lovísa Thompson ákvað í sumar að gefa atvinnumennskunni erlendis annan séns þegar hún yfirgaf Val og gekk til liðs við portúgalska félagið Benfica.

Lovísa átti stórkostlegt tímabil með Val þar sem liðið vann allt sem í boði var á Íslandi. Það eftir viðburðaríkt tímabil þar sem Valsliðið varð meðal annars Evrópubikarmeistari. Eftir tvö ár þar sem meiðsli héldu henni frá handbolta langaði hana hins vegar að takast á við nýja áskorun og reyna fyrir sér á nýjan leik erlendis.

„Mig langaði til að gefa því annan séns að prófa að spila og búa erlendis,“ segir Lovísa í samtali við Handkastið.

„Eftir að ég kom heim eftir stutt stopp í Danmörku, fyrir fjórum árum, tóku við tvö ár af meiðslum þar sem ég spilaði ekki handbolta. Þegar þetta kom upp á borðið langaði mig að taka slaginn og láta á þetta reyna.“

Fékk góða innsýn í Benfica

Áhuginn frá Benfica kom fyrst upp í kringum mars og ferlið stóð síðan yfir allt þar til Lovísa kom til Portúgals í lok júlí. Ákvörðunin um að ganga til liðs við félagið var þó tiltölulega einföld fyrir Lovísu. Valur fór í æfingaferð til Lissabon á síðasta undirbúningstímabili og fékk þá að kynnast aðstæðum hjá Benfica.

„Við fengum að æfa og spila við þeirra aðstæður. Þar sáum við að þetta er toppklúbbur með allt til alls til að verða betri íþróttakona. Ég varð því mjög spennt og til í þetta ævintýri.“

Benfica er eitt stærsta íþróttafélag Portúgals og umfangið í kringum félagið er mikið. Lovísa segir þó að handboltaliðið sé að mörgu leyti sambærilegt við það sem hún þekkir frá Íslandi.

„Umfangið í kringum Benfica er samt mikið þannig að maður þarf að venjast ýmsu hér. Félagið er til dæmis með eigin útvarpsstöð, sjónvarpsstöð og fréttablað svo þetta er stórt batterí.“

Benfica

Ekki mikill munur á Val og Benfica

Lovísa segir umgjörðina í kringum Val vera með því besta sem gerist hér á landi og hafi því ekki komið henni sérstaklega á óvart hversu vel er staðið að málum hjá Benfica.

„Að mínu mati er umgjörðin í Val ein sú besta á Íslandi þegar kemur að kvennahandbolta. Þar eru færir þjálfarar sem vilja allt fyrir mann gera, flott teymi og stjórn sem er tilbúin að hlusta og aðstoða okkur við að verða betri íþróttakonur.“

Helsti munurinn sem hún hefur tekið eftir hingað til snýr að fagteyminu í kringum leikmennina.

„Hér er sjúkraþjálfari á hverri æfingu og hann býður upp á meðferðir daglega. Hann vinnur náið með styrktarþjálfaranum og þeir vinna saman styrktarprógrömm leikmanna. Svo er íþróttanæringarfræðingur líka til staðar sem tekur alls konar mælingar og gefur ráðleggingar eftir þörfum.“

Fékk erfiða byrjun

Fyrstu dagarnir hjá Benfica hafa þó ekki alveg farið eftir áætlun. Lovísa veiktist fljótlega eftir komuna og hefur því ekki enn náð að æfa af fullum krafti.

„Fyrstu dagarnir hafa gengið ágætlega. Þjálfarinn talar bara portúgölsku svo nokkrir leikmenn hafa verið duglegir að þýða fyrir okkur nýju leikmönnunum. Ég hef hins vegar ekki náð að æfa eftir bestu getu þar sem ég byrjaði á að næla mér í svæsna magakveisu í nokkra daga en nú er þetta vonandi bara upp á við.“

Að öðru leyti hefur aðlögunin gengið vel og Lovísa segir liðsfélagana hafa tekið vel á móti sér.

„Stelpurnar í liðinu hafa verið yndislegar og tekið manni opnum örmum frá fyrsta degi svo það er frábært.“

Benfica

Vonast til að verða aðeins rólegri

Lovísa kann vel við sig í nýju landi og segir lífið í Portúgal hafa farið vel af stað.

„Sólin skín allan daginn svo það er erfitt að vera í vondu skapi. Portúgalinn er voða vingjarnlegur og rólegur svo ég er að vonast eftir að verða aðeins chillaðri týpa, því ég er svolítið ofvirk.“

Leikstíllinn hefur heldur ekki verið mikill viðsnúningur.

„Leikstíllinn hjá liðinu er mjög svipaður því sem maður þekkir heima en hér eru margir litlir og snöggir leikmenn með ýmsar krúsídúllur upp í erminni.“

Ætlar að nýta tækifærið

Lovísa gerir sér grein fyrir því að hún er að fá mikilvægt tækifæri með því að ganga til liðs við Benfica.

„Markmiðið mitt er að haldast heil og koma mér inn í leik liðsins. Ég er að fá gott tækifæri til að setja íþróttina loksins í fyrsta sæti og ætla því að reyna að fá sem mest út úr þessari reynslu, bæta mig sem íþróttakonu og bara njóta lífsins í borginni.“

Hún hefur ekki enn fengið nákvæmlega skilgreint hlutverk sitt hjá liðinu en reiknar með að geta leyst nokkrar stöður.

„Við erum ekki komin svo langt í að skilgreina hlutverkin en ég býst við því að spila sem vinstri og hægri skytta og leysa af bakvörð og hafsent í vörn.“

Benfica

Ætla að sækjast eftir öllum titlunum

Benfica hefur miklar væntingar fyrir komandi tímabil og Lovísa segir markmiðin einföld.

„Liðið stefnir á að vinna alla helstu titla sem í boði eru.“

Það er þó eitt markmið sem stendur upp úr.

„Draumamarkmiðið er svo að komast áfram í Evrópudeildinni þar sem við erum í umspili um að komast þangað inn.“

Lovísa segist ekki enn þekkja portúgölsku deildina nægilega vel til að leggja mat á styrkleika hennar en Benfica hefur haft mikla yfirburði undanfarin ár.

„Ég verð að viðurkenna að ég veit ekki mikið um gæði deildarinnar en Benfica hefur unnið flesta leikina í deildinni frekar sannfærandi undanfarin ár og því mikil sigurhefð í þessu liði. Ég held að það gæti verið sama upp á teningnum í ár en enginn leikur er unninn fyrirfram og ég er bara spennt að takast á við þetta tímabil á nýjum stað.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top