Íslands- og deildarmeistarar Vals eru mættir til Þórshafnar í Færeyjum þar sem liðið tekur þátt í afar sterku alþjóðlegu æfingamóti dagana 13. til 16. ágúst. Fyrsti leikur Vals er í dag gegn danska stórliðinu GOG. Mótið er mikilvægur liður í undirbúningi Vals fyrir komandi tímabil í Olís-deildinni, en mótherjarnir í Færeyjum verða af allra sterkasta tagi. Valur verður einnig í eldlínunni í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í vetur, ásamt FH. Auk Vals taka H71 frá Færeyjum, THW Kiel frá Þýskalandi og GOG frá Danmörku þátt í mótinu. Kiel er eitt stærsta félag Evrópu og GOG leikur í Meistaradeild Evrópu á komandi tímabili. Leikirnir fara fram í þjóðarhöllinni í Færeyjum við Tjarnir. Samkvæmt færeyska miðlinum in.fo er um að ræða stærsta félagsliðamót sem haldið hefur verið í Færeyjum. Mótið hefur einnig sterka tengingu við Færeyjar þegar litið er til erlendu liðanna. Færeysku landsliðsmennirnir Allan Norðberg og Bjarni í Selvindi leika með Val, auk þess sem þjálfari liðsins, Ágúst Þór Jóhannsson, stýrði færeyska kvennalandsliðinu á sínum tíma. Þá er færeyski landsliðsmaðurinn Elias Ellefsen á Skipagøtu á mála hjá Kiel en frændi hans, Óli Mittún, leikur með GOG. Færeyska liðið H71 mætir einnig til leiks sem ríkjandi færeyskur meistari. Leikir Vals á mótinu:


Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.