Leikjaniðurröðun riðlakeppni Evrópudeildar karla liggur nú fyrir og bæði Valur og FH hafa fengið dagsetningar á sína sex leiki í riðlakeppninni. Valur byrjar keppnina á heimavelli gegn danska félaginu, Mors-Thy en FH hefur keppni á Spáni gegn Bidasoa Irun. Alls eru 32 lið í riðlakeppninni og verða leiknar sex umferðir áður en komið er að útsláttarkeppninni. Valur er í H-riðli ásamt Mors-Thy frá Danmörku, MOL Tatabánya frá Ungverjalandi og RD LL Grosist Slovan frá Slóveníu. FH er í B-riðli með Bidasoa Irun frá Spáni, Limoges frá Frakklandi og Marítimo da Madeira frá Portúgal. Valur hefur keppni á heimavelli 29. september þegar Mors-Thy kemur í heimsókn. Í 2. umferð sækja Valsmenn Slovan heim áður en MOL Tatabánya kemur til Íslands í 3. umferð. Eftir hlé í keppninni sækir Valur síðan Tatabánya heim í nóvember og mætir síðan Mors-Thy á útivelli. Riðlakeppninni lýkur svo á heimavelli gegn Slovan í desember. Leikir Vals:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.