Leikjaniðurröðun riðlakeppni Evrópudeildar karla liggur nú fyrir og bæði Valur og FH hafa fengið dagsetningar á sína sex leiki í riðlakeppninni. Valur byrjar keppnina á heimavelli gegn danska félaginu, Mors-Thy en FH hefur keppni á Spáni gegn Bidasoa Irun. Alls eru 32 lið í riðlakeppninni og verða leiknar sex umferðir áður en komið er að útsláttarkeppninni. FH byrjar Evrópuævintýri sitt á útivelli. Bidasoa Irun tekur á móti Hafnfirðingum 29. september. FH fær síðan Limoges í heimsókn í 2. umferð áður en liðið heldur til Portúgals og mætir Marítimo da Madeira. Í nóvember kemur Marítimo til Íslands og í næstu umferð mætir FH Bidasoa á heimavelli. Síðasti leikur FH í riðlakeppninni verður svo gegn Limoges á útivelli í desember. Leikir FH:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.