Jóan fór á kostum í sigri KA/Þórs
KA/Þór

KA/Þór vann fyrsta leik Opna Norðlenska mótsins í kvennaflokki í gær þegar liðið tók á móti Aftureldingu.

KA/Þór leiddi hálfleik 13-11 en lokatölur 28-21 heimakonum í vil.

Færeyingurinn, Jóan Rúnadóttir var markahæst í liði KA/Þór með 13 mörk en hún gekk í raðir félagsins í sumar. Bergrós Ásta Guðmundsdóttir skoraði sex mörk og Lydía Gunnþórsdóttir skoraði fjögur.

Hjá Afturelding var Katrín Helga Davíðsdóttir markahæst með átta mörk og Mattý Rós Birgisdóttir skoraði fjögur. Rakel Dóróthea Ágústsdóttir, Drífa Garðarsdóttir og Karen Hrund Logadóttir skoruðu tvö mörk hver.

Í kvöld mætast KA/Þór og ÍR klukkan 18:30 en ÍR og Afturelding spila síðan lokaleik mótsins á morgun.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top