Guðrún Þorláksdóttir ekki með Gróttu í vetur
Eyjólfur Garðarsson

Línumaðurinn Guðrún Þorláksdóttir leikur ekki með Gróttu í Olís-deild kvenna á komandi tímabili, í það minnsta ekki eins og staðan er núna. Þetta staðfesti Júlíus Þórir Stefánsson, þjálfari Gróttu, í samtali við Handkastið.

Guðrún, sem er uppalin hjá Gróttu, skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við félagið síðasta sumar. Hún varð móðir á þar síðasta tímabili og lék aðeins með liðinu síðustu mánuði þess tímabils. Hún lék hinsvegar með liðinu í Grill66-deildinni á síðustu leiktíð.

Guðrún hefur verið hluti af meistaraflokki Gróttu undanfarin níu ár og er einn reynslumesti leikmaður félagsins. Hún á að baki yfir 150 leiki með meistaraflokki Gróttu.

Grótta verður nýliði í Olís-deildinni á komandi tímabili eftir að deildin var stækkuð úr átta liðum í tíu. HK og Víkingur verða einnig nýliðar í deildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top