Hafnarfjarðarmótið hefst í dag
Egill Bjarni Friðjónsson

Hið árlega Hafnarfjarðarmót í meistaraflokki karla hefst á morgun, laugardag, þegar fjögur lið mætast í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum.

Að þessu sinni taka Haukar, FH, Afturelding og HK þátt í mótinu og leika öll lið þrjá leiki. Mótið er fastur liður í undirbúningi liðanna fyrir komandi átök í Olís-deild karla og gefst þeim kærkomið tækifæri til að stilla saman strengi áður en alvaran hefst.

Fyrstu tveir leikir mótsins fara fram í dag. FH mætir HK klukkan 11:00 og tveimur klukkustundum síðar, klukkan 13:00, eigast Haukar og Afturelding við.

Ljóst er að FH verður án Daníels Freys Andréssonar sem sleit hásin á æfingu hjá FH í vikunni, líkt og Handkastið greindi frá í gær.

Mótið heldur svo áfram þriðjudaginn 18. ágúst áður en því lýkur laugardaginn 22. ágúst með tveimur leikjum.

Leikjadagskráin

Laugardagur 15. ágúst

  • 11:00 – FH – HK
  • 13:00 – Haukar – Afturelding

Þriðjudagur 18. ágúst

  • 18:00 – Haukar – HK
  • 20:00 – FH – Afturelding

Laugardagur 22. ágúst

  • 11:00 – Afturelding – HK
  • 13:00 – Haukar – FH

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top