Hafði aldrei þorað að hugsa um að verða þýskur meistari
Eva Manhart; MOL Esztergom

Ferill Elínar Rósu Magnúsdóttur hefur tekið miklum framförum á undanförnum árum. Hún lyfti Evrópubikarnum með Val árið 2025, varð síðan þýskur meistari með HSG Blomberg-Lippe á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku og í haust bíður hennar stærsta áskorunin hingað til, þátttaka í Meistaradeild Evrópu með Blomberg Lippe.

Elín Rósa var í löngu og ítarlegu viðtali við vef evrópska handknattleikssambandsins á dögunum.

Elín varð Evrópubikarmeistari með Val vorið 2025 eftir dramatískan úrslitaleik gegn spænska liðinu Porriño. Leikurinn reyndist hennar síðasti með Val áður en hún hélt út til Þýskalands og gekk til liðs við Blomberg-Lippe.

Fyrsta tímabil hennar í Þýskalandi með Blomberg lék liðið í Evrópudeildinni og komst í úrslitakeppni þýsku deildarinnar. Þar beið þeirra, Borussia Dortmund og eftir dramatíska rimmu tókst Blomberg að tryggja sér þýska meistaratitilinn. Titillinn var sögulegur fyrir félagið – sá fyrsti í sögu Blomberg-Lippe.

„Þegar ég samdi við Blomberg hafði ég aldrei þorað að hugsa um að verða þýskur meistari strax á fyrsta árinu og að ég myndi síðan spila í Meistaradeildinni á öðru tímabilinu. Þetta er samt svolítið óraunverulegt,“ segir Elín Rósa.

Vonast eftir fleiri Íslendingum út

Elín er einungis önnur tveggja íslenskra leikmanna í Meistaradeild Evrópu kvenna á komandi tímabili. Hin er liðsfélagi hennar hjá Blomberg Lippe, Díana Dögg Magnúsdóttir. Andrea Jacobsen lék með liðinu á síðustu leiktíð en hefur gengið í raðir ÍBV í Olís-deildinni fyrir komandi tímabil. Að hafa íslenska liðsfélaga við komuna til nýs lands gerði vistaskiptin auðveldari.

„Auðvitað auðveldaði það lífið að hafa landa í liðinu. Þær hjálpuðu mér mikið, ekki bara á handboltavellinum heldur líka við að koma mér fyrir í Þýskalandi.“

Elín vonast til þess að fleiri íslenskir leikmenn taki skrefið út í atvinnumennsku. „Það hjálpar einstaklingnum að þróast en myndi líka auðvitað lyfta íslenska landsliðinu upp á hærra plan.“

Fullkominn endir hjá Val

Eins og hjá mörgum íslenskum íþróttamönnum stundaði Elín bæði fótbolta og handbolta á yngri árum. Hún lék fótbolta á sumrin en handbolta yfir veturinn. Þegar hún var 13 ára fóru hins vegar að gera vart við sig vandamál í hné og hún ákvað að einbeita sér að handboltanum. Elín Rósa er uppalin í Reykjavík og hóf ferilinn hjá ÍR og Fylki áður en hún gekk til liðs við Val aðeins 17 ára gömul.

Með Val varð hún þrisvar Íslandsmeistari og einu sinni bikarmeistari, auk þess sem hún kvaddi félagið með Evrópubikarmeistaratitli.

„Við vorum með frábært lið og frábæran þjálfara. Þetta var hópur sem smellpassaði saman. Að vinna Evrópubikarinn var fullkominn endir.“

Fljótlega eftir EM 2024 hafði Steffen Birkner, þjálfari Blomberg, samband við hana.

„Ég var að leita að öðru liði til að fara út og að lokum var það frekar auðvelt og fljótlegt að segja já við Blomberg.“

Meistaradeildin allt annað svið

Nú bíður Elínar og Blomberg mun stærra verkefni. Þýski meistaratitillinn tryggði félaginu sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar þar sem liðið mætir meðal annars ríkjandi meisturum Györ og Metz, auk Odense, Bistrita, Storhamar og Nykøbing.

„Það er allt öðruvísi að spila í Meistaradeildinni en Evrópudeildinni. Það eru svo mörg stór nöfn, bæði hjá félögum og leikmönnum. Það verður mjög áhugavert að sjá hvar við stöndum gagnvart þessum toppliðum. Ég vona að við getum staðið okkur vel, unnið nokkra leiki og staðið undir væntingum.“

Blomberg hefur styrkt hópinn fyrir tímabilið og Elín vonast til að nýju leikmennirnir nái fljótt saman.

„Við erum með nokkra nýja leikmenn í hópnum og ég vona að það smellpassi strax í byrjun.“

Fjöldi leikja verður einnig mun meiri en á síðasta tímabili og þar gæti reynt verulega á hópinn.

„Ég er viss um að þjálfarinn er með góða áætlun. Hópurinn er mjög einbeittur og ef við byrjum vel í þýsku deildinni mun það hjálpa okkur mikið í Meistaradeildinni.“

Fyrsti leikur Blomberg í Meistaradeildinni verður sunnudaginn 6. september þegar Bistrita kemur í heimsókn. Leikið verður í Lemgo, sem hefur verið heimavöllur Blomberg í Evrópuleikjum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top