Frábær fyrri hálfleikur hjá Val dugði ekki til gegn Kiel
HSÍ

Wenzel Nordic Cup í Færeyjum hélt áfram í kvöld þar sem Valsmenn mættu þýska stórliðinu Kiel í öðrum leik liðanna á mótinu.

Valsmenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru 10-7 yfir eftir um 15 mínútna leik. Leikmenn Kiel náðu hægt og rólega að minnka muninn en Færeyingurinn, Bjarni í Selvindi, skoraði síðasta mark fyrri hálfleiks og leiddu Valsmenn nokkuð óvænt í hálfleik 16-15.

Leikmenn Kiel sýndu úr hverju þeir eru gerðir í síðari hálfleik og voru snöggir að snúa leiknum sér í vil á upphafsmínútunum og voru þeir komnir fjórum mörkum yfir þegar síðari hálfleikur var rúmlega hálfnaður.

Á lokamínútum leiksins skoruðu Kiel svo fjögur síðustu mörkin og unnu að lokum öruggan 10 marka sigur, 24-34.

Arnór Snær Óskarsson var markahæstur í liði Vals með 8 mörk en Gunnar Róbertsson skoraði 6 mörk. Hjá Kiel var sænska stórskyttan Eric Johannsson markahæstur með 9 mörk og Ben Janos Szilagyi skoraði 7 mörk.

Valsmenn eru því með 0 stig eftir 2 leiki en eiga eftir að mæta heimamönnum í H71 sem töpuðu fyrr í dag gegn GOG.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top