Kvennalið ÍR vann tveggja marka sigur á KA/Þór í öðrum leik Opna Norðlenska mótsins sem fram fer í KA-heimilinu um þessar mundir. ÍR hafði betur 25-23 en KA/Þór vann Aftureldingu í fyrsta leik mótsins. Mótinu lýkur á morgun þegar ÍR og Afturelding mætast en þar getur ÍR tryggt sér sigur á mótinu með sigri. Sara Dögg Hjaltadóttir var atkvæðamest í liði ÍR í leiknum með sjö mörk og Sylvía Sigríður Jónsdóttir kom næst með fimm mörk. Sólveig Lára Kristjánsdóttir var markahæst í liði KA/Þórs með sjö mörk og Bergrós Ásta Guðmundsdóttir skoraði fimm, ásamt Jóan Rúnadóttur. Þrjá nýja leikmenn vantaði í lið KA/Þórs í leikjunum tveimur á mótinu en Agatha Djurhuus, Aldís Ásta Heimisdóttir og Lenka Ratvajská voru ekki með KA/Þór í leikjunum en allar gengu þær í raðir félagsins í sumar og munu hafa mikil áhrif á lið KA/Þórs í Olís-deildinni í vetur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.