Hafnarfjarðarmótið er farið af stað og voru 2 leikir spilaðir í dag hjá körlunum. Annars vegar leikur Hauka og Aftureldingar og svo leikur FH og HK. Aftureldingar menn sigruðu Hauka 24-28 eftir að hafa verið undir 13-11 í hálfleik. Hjá Aftureldingu var Ævar Smári Gunnarsson markahæstur með 5 mörk og Einar Baldvin Baldvinsson varði 8 skot. Hjá Haukum var Skarphéðinn Ívar Einarsson markahæstur með 5 mörk og Grétar Ari Guðjónsson varði 6 skot. FH sigraði svo HK 33-30. Hjá FH voru Ómar Darri og Ágúst Guðmundsson markahæstir með 5 mörk. Jón Þórarinn Þorsteinsson varði 8 skot. Því miður var ekki nein tölfræði um markaskorara HK á heimasíðu HBstatz einhverra hluta vegna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.