Þórey Anna framlengir við Val til 2029
(Egill Bjarni Friðjónsson)

Landsliðskonan og hægri hornamaðurinn Þórey Anna Ásgeirsdóttir hefur framlengt samningi sinn við Val til ársins 2029.

Þórey Anna greindi frá því í mars síðastliðnum að hún væri barnshafandi skömmu eftir að hún varð bikarmeistari með liðinu. Hún tekur því upp þráðinn með liðinu á næstu mánuðum og verður það gríðarlegur liðsstyrkur fyrir Val.

Þórey Anna skoraði 90 mörk í 15 leikjum í deildinni á síðasta tímabili.

"Það eru frábær tíðindi fyrir félagið að Þórey sé búin að framlengja samninginn sinn. Hún hefur verið lykilleikmaður hjá liðinu undanfarin ár og einnig verið frábær liðsmaður. Þórey býr yfir miklum gæðum og hefur hún sýnt það bæði með Val og Íslenska landsliðinu og verið einn besti leikmaður deildarinnar. Hún er mikilvægur leiðtogi innan sem utan vallar og mun hún án efa miðla sinni reynslu til yngri leikmanna félagsins,“ segir Anton Rúnarsson, þjálfari meistaraflokks kvenna í tilkynningu frá Val í dag.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top