Fengu 91 mark á sig í tveimur leikjum fyrir norðan
Eyjólfur Garðarsson

Karlalið ÍR töpuðu báðum leikjum sínum á Opna Norðlenska mótinu sem fram fór í síðustu viku og lauk á laugardaginn með leik Þórs og ÍR. Mótið fór fram í KA-heimilinu.

ÍR tapaði fyrri leik sínum á mótinu 46-33 gegn KA en á laugardaginn tapaði liðið gegn Þór 45-39. Með sigrinum tryggði Þór sér sigur á Opna Norðlenska mótinu en liðið vann nágranna sína í KA í fyrsta leik mótsins á miðvikudagskvöldið. Aðeins þrjú lið tóku þátt í mátinu.

ÍR sem féllu úr Olís-deildinni á síðustu leiktíð og leika í Grill66-deildinni á næstu leiktíð fengu því samtals 91 mark á sig í leikjunum tveimur gegn KA og Þór. Alls skoraði liðið 72 mörk sem í flestum tilfellum ættu að duga liðum til að innbyrða sigur.

Bjartur Fritz Bjarnason var markahæstur í liði ÍR með níu mörk í leiknum gegn Þór og þeir Bernard Kristján Darkoh og Jökull Blöndal Björnsson skoruðu sjö mörk hvor.

Í liði Þórs var Daninn, William Skovsager markahæstur með tíu mörk. Jóhann Geir Sævarsson sem gekk í raðir Þórs frá KA skoraði sjö mörk. Oliver, Mikkel, Oddur og Úlfur skoruðu síðan fjögur mörk hvor.

Þórsarar voru hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins á næstu leiktíð en sigrarnir tveir á Opna Norðlenska mótinu gefa góð fyrirheit fyrir Þórsara fyrir komandi tímabil.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top